Hjá Gilbert úrsmið eru framleidd og seld vönduð úr undir merkjum JS Watch co. Reykjavik og ARC-TIC Iceland.
Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina, glæsilega íslenska hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd.
Persónuleg þjónusta og einstök vöruþekking er aðalsmerki okkar og þjónustustig verslunarinnar er til fyrirmyndar. Viðskiptavinir eiga kost á að hitta framleiðendur, fá að sjá úrsmiði að störfum og koma með ábendingar varðandi samsetningu og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast kaupa. Vörulínur JS Watch co. Reykjavík og ARC-TIC Iceland fara ört stækkandi og hefur úrval úra aldrei verið meira.
- Gilbert Úrsmiður Laugavegi 62, Sími: 551-4100
Hér fyrir neðan getur þú kynnt þér vörulínurnar nánar.
ATH. Við bjóðum uppá faglega og persónulega þjónustu í gegnum myndsímtal fyrir þá sem ekki sjá sér fært um að mæta í verslun okkar. Hafðu samband við okkur í síma 551-4100 og pantaðu tíma.